Kórónuveira
Síðast uppfært: 17.5.2022
Skilgreiningar
- Þessar leiðbeiningar eiga við um eftirfarandi sýkingar:
- SARS (Severe Acute Respiratory Syndrome)
- MERS (Middle Eastern Respiratory Syndrome)
- COVID-19 (vegna sýkingar með SARS-CoV-2 veiru, áður þekkt sem Kórónaveira 2019-nCoV eða Novel coronavirus)
- Bati eftir kórónuveirusýkingu:
- Gjafi telst hafa náð bata ef hann/hún er hitalaus, líður vel og hefur ekki einkenni frá öndunarfærum.
Almennar reglur
- Staðfest kórónuveirusýking (einangrun):
- Ekki má gefa blóð á meðan á sýkingu stendur.
- Gefa má blóð ef 14 dagar hafa liðið frá því að einkenni hafa gengið yfir og/eða einangrun lýkur í samræmi við reglur sóttvarnaryfirvalda hverju sinni.
- Sóttkví (vegna nándar við COVID-19 tilfelli):
- Gefa má blóð ef 2 dagar hafa liðið frá lokum sóttkvíar.
- Smitgát: (Þegar einstaklingur hefur fengið upplýsingar um mögulega útsetningu fyrir COVID-19 en ekki er talin þörf á sóttkví).
- Gefa má blóð ef 2 dagar hafa liðið frá lokum smitgátar.
- Heimkoma eftir ferðalag til útlanda
- Enginn frestur er lengur vegna COVID-19.
Nánari útskýringar
- Þessar reglur eiga ekki við um kvef eða efri loftvegasýkingar af völdum annarra kórónuveira.
- Blóðgjafar eru beðnir að láta vita veikist þeir innan 14 daga frá blóðgjöf.
Tengt efni
Til fróðleiks
- Í lok desember 2019 bárust fregnir af alvarlegum lungnasýkingum í Wuhan-borg í Kína, þá af óþekktum orsökum. Í kjölfarið var staðfest að um áður óþekkt kórónaveiruafbrigði er að ræða sem nefnist SARS-CoV-2 veira og veldur COVID-19 sjúkdómi.
- Ekki hefur verið sýnt fram á að kórónuveirur smitist með blóðhlutainngjöfum en ofangreindar reglur eru varúðarráðstafanir.
Ástæða breytingar
- Skilgreining á bata eftir kórónuveirusýkingu
Upplýsingar til blóðgjafa
- Ef spurningar vakna um heilsufar vinsamlegast hafið samband við heilsugæslulækni.
- Þessi síða er ekki ætluð til þess að leita upplýsinga um sjúkdómsgreiningar eða meðferð.